Jovanovic hafnaði Real Madrid áður en hann samdi við Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2010 17:45 Milan Jovanovic með þeim Danny Wilson og Joe Cole. Mynd/AFP
Serbinn Milan Jovanovic segist hafa hafnað því á sínum tíma að fara til Real Madrid og valdi frekar að semja við Liverpool. Ástæðan er að hann var efins um að fá eitthvað að spila hjá Real. „Ég held að um 99 prósent af öllum þeim sem ég talaði við skilji ekki af hverju ég sagði nei við Real. Ég er kannski bara svona einstakur en ég vissi að ég yrði bara venjulegur leikmaður hjá Real Madrid en ég gat verið stjarnan í Belgíu," sagði Milan Jovanovic við Sky Sports. „Deildin í Belgíu er ekki stór en ég vann þar tvo meistaratitla og fékk tvö stór einstaklingsverðlaun. Ég var mjög ánægður með tímann minn þar," sagði Jovanovic. „Real bauð mér eins árs samning með möguleika á að framlenja hann um eitt ár. Ég bað um fjögurra ára samning en þeir svöruðu nei og því ákvað ég að hafna þeim. Þeir eru kannski stærsta félag í heimi en ég vissi að það kæmi önnur stór félög," sagði Jovanovic. „Ég mun aldrei fara þangað sem ég fæ ekki að spila alvöru hlutverk. Það er nefnilega miklu betra að vera ánægður þar sem þú spilar og nú bíð ég spenntur eftir því að spila með Liverpool," sagði Jovanovic sem verður væntanlega í sviðsljósinu í kvöld þegar LIverpool spilar fyrri leikinn á móti FK Rabotnicki í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira