NBA: Níu í röð hjá Miami - Sigurganga Dallas stöðvuð Elvar Geir Magnússon skrifar 14. desember 2010 09:12
Dwyane Wade skoraði 32 stig fyrir Miami Heat sem vann í nótt níunda leik sinn í röð. Liðið lagði þá New Orleans Hornets á heimavelli 96-84. Þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem Wade nær að skora yfir 30 stig. Chris Bosh var einnig í stuði en hann skoraði 23 stig og tók 11 fráköst. LeBron James var með 20 stig en ghá New Orleans var David West stigahæstur með 26 stig. Milwaukee Bucks vann Dallas Mavericks 103-99 og stöðvaði þar með 12 leikja sigurgöngu Dallas. Brandon Jennings var með 23 stig og 10 stoðsendingar í liði Milwaukee og Andrew Bogut skoraði 21 stig. Dirk Nowitzki var með 30 stig fyrir Dallas. Chicago Bulls vann sinn sjötta leik í röð þegar liðið lagði Indiana Pacers örugglega 92-73. Chicago lítur betur út með hverjum leik og er þetta fyrsta sex leikja sigurganga liðsins síðan 2006. Carlos Boozer skoraði 22 stig fyrir Chicago. Öflugur varnarleikur Memphis Grizzlies færði liðinu 86-73 sigur gegn Portland Trail Blazers. Zach Randolph skoraði 25 stig og tók 20 fráköst fyrir Memphis. Utah Jazz vann 108-95 sigur gegn Golden State Warriors. Golden State var þarna að tapa sínum tólfta leik af þrettán síðustu. Deron Williams skoraði 30 stig fyrir Utah en þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem hann nær þriðja tugnum. Miami - New Orleans 96-84 Memphis - Portland 86-73 Utah - Golden State 108-95 Chicago - Indiana 92-73 Dallas - Milwaukee 99-103
NBA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjá meira