Mourinho grét á öxlinni á Materazzi þegar þeir kvöddust - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2010 15:45 Jose Mourinho og Marco Materazzi fagna sigrinum í Meistaradeildinni. Mynd/Getty Images
Það var skiljanlega ekki auðvelt fyrir Jose Mourinho að kveðja leikmenn og samstarfsmenn sína hjá Internazionale eftir sigurinn í Meistaradeildinni um síðustu helgi. Mourinho er á leiðinni til Real Madrid þrátt fyrir að allir hafi grátbeðið hann um að vera áfram hjá Inter. Það er þó óhætt að segja að það hafi verið sannkallað tilfinninga- og tára-flóð þegar Mourinho kvaddi Marco Materazzi. Marco Materazzi sagðist hafa reynt að fá Mourinho til að halda áfram þegar portúgalski þjálfarinn var að skipta honum inn á í uppbótartíma úrslitaleiksins. Það var þó aðeins upphitun fyrir samtal þeirra þegar komið var að brottför Mourinho. Það var tilfinningarík kveðjustund hjá Mourinho og Materazzi þegar portúgalski þjálfarinn var að yfirgefa Santiago Bernabeu. Mourinho er búinn að kveðja alla og sestur inn í aftursæti bílsins síns þegar hann sér Marco Materazzi útundan sér. Mourinho lætur stoppa bílinn og hleypur til ítalska varnartröllsins. Marco Materazzi og Jose Mourinho fallast síðan í faðma og gráta á öxl hvors annars. Mourinho snýr síðan hágrátandi aftur í bílinn og keyrir burtu. Það má sjá þetta myndband á Youtube eða með því að smella hér.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira