Sport

Guðmundur Ágúst á meðal þeirra efstu í Flórída

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. GSÍ

Kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í baráttunni um sigurinn á sterku móti fyrir yngri kylfinga sem fram fer í Flórída í Bandaríkjunum. Guðmundur Ágúst, sem er klúbbmeistari GR, er í 2.-4. sæti á Junior Orange Bowl meistaramótinu fyrir lokadaginn sem fram fer í dag.

Íslenski kylfingurinn er á 2 höggum yfir pari samtals eftir 3 hringi en hann hefur leikið á 74 (+4), 70 (par), og 68 höggum í gær eða 4 höggum undir pari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×