NBA: Lakers aftur á sigurbraut en New York tapar og tapar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2010 09:00 Kobe Bryant stingur sér á milli leikmanna Milwaukee Bucks í nótt. Mynd/AP
Los Angeles Lakers endaði tveggja leikja taphrinu sína með því að vinna útisigur á Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. New York Knicks tapaði sínum sjötta leik í röð en Chicago Bulls er að sama skapi búið að vinna fjóra síðustu leiki sína.Kobe Bryant skoraði 31 stig og Shannon Brown var með 16 af 21 stigi sínu í fjórða leikhlutanum þegar Los Angeles Lakers vann 118-107 útisigur á Milwaukee Bucks. Lakers hafði tapað tveimur leikjum í röð eftir að hafa unnið átta fyrstu leiki tímabilsins. Shannon Brown hitti úr 7 af 9 skotum sínum þar af 4 af 5 fyrir utan þriggja stiga línuna. Pau Gasol var með 18 stig, 10 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 varin skot. Brandon Jennings skoraði 31 stig fyrir Milwaukee, Andrew Bogut var með 12 stig og 18 fráköst og Drew Gooden skoraði 22 stig og tók 13 fráköst. Milwaukee hafði unnið þrjá síðustu leiki sína fyrir leikinn.Derrick Rose skoraði 17 af 33 stigum sínum í lokaleikhlutanum þegar Chicago Bulls vann 95-92 sigur á Houston Rockets á útivelli. Rose var einnig með 7 stoðsendingar. Luol Deng bætti við 16 stigum og 10 fráköst í fjórða sigri liðsins í röð. Luis Scola skoraði 27 stig fyrir Houston.Carmelo Anthony skoraði 26 stig þegar Denver Nuggets vann 120-118 sigur á New York Knicks. Þetta var sjötta tap New York í röð. Al Harrington var með 22 stig fyrir Denver á móti sínu gamla félagi en Amare Stoudemire skoraði 24 stig fyrir Knicks.Gilbert Arenas skoraði 20 stig í fjarveru nýliðans John Wall og hjálpaði Washington Wizards að vinna 109-94 sigur á Toronto Raptors. Arenas var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn á tímabilinu vegna meiðsla Wall. Andray Blatche var með 22 stig fyrir Washington, Nick Young var með 20 stig og Kirk Hinrich bætti við 13 stigum og 12 stoðsendingum í 3. sigri Wizards í 9 leikjum.Wesley Matthews skoraði 30 stig í forföllum Brandon Roy og sá til þess öðrum fremur að Portland Trail Blazers vann 100-99 sigur á Memphis Grizzlies. LaMarcus Aldridge var með 23 stig fyrir Portland og Andre Miller bætti við 19 stigum og 9 stoðsendingum. Rudy Gay skoraði 20 stig fyrir Memphis.Josh Smith var með 25 stig, 8 fráköst og 7 varin skot þegar Atlanta Hawks vann 102-92 útisigur á Indiana Pacers. Mike Bibby var með 16 stig og Al Horford skoraði 15 stig en þetta var annar sigur Atlanta í röð en liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð þar á undan. Danny Granger skoraði 22 stig fyrir Indiana og Roy Hibbert bætti við 18 stigum og 15 fráköstum.Daniel Gibson skoraði 18 stig og gaf 8 stoðsendingar í 101-93 sigri Cleveland Cavaliers á Philadelphia 76ers. Þetta var fjórða tap Philadelphia í röð en Cleveland hefur nú unnið jafnamarga leiki (5) og liðið hefur tapað. Thaddeus Young var stigahæstur hjá 76ers með 20 stig en nýliðinn Evan Turner skoraði 16 stig. Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Cleveland Cavaliers-Philadelphia 76ers 101-93 Indiana Pacers-Atlanta Hawks 92-102 Washington Wizards-Toronto Raptors 109-94 Memphis Grizzlies-Portland Trail Blazers 99-100 Milwaukee Bucks-Los Angeles Lakers 107-118 Houston Rockets-Chicago Bulls 92-95 Denver Nuggets-New York Knicks 120-118
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira