NBA í nótt: Durant og Oklahoma aftur á beinu brautina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. nóvember 2010 09:00 Kevin Durant í leiknum í nótt. Mynd/AP
Eftir tvo tapleiki í röð tókst Kevin Durant og félögum í Oklahoma City Thunder aftur að komast á beinu brautina með naumum sigri á Portland í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt, 107-106. Liðið hafði tapað fyrir Utah og Clippers en í síðarnefnda leiknum gekk ekkert hjá Durant sem hitti úr aðeins sex af 24 skotum sínum utan af velli. Oklahoma City lenti svo undir í síðari hálfleik í nótt en náði engu að síður góðum spretti í fjórða leikhluta og tryggja sér framlengingu. Liðið náði svo undirtökunum í framlengingunni og tryggði sér góðan sigur á sterkum útivelli. Kevin Durant og Russel Westbrook voru báðir með 28 stig og ellefu fráköst í leiknum. LaMarcus Aldridge var með 22 stig fyrir Portland og Brandon Roy nítján. New York Knicks vann Chicago Bulls, 120-112, þar sem leikmenn fyrrnefnda liðsins fóru á kostum fyrir utan þriggja stiga línunnar. Alls settu þeir niður sextán þrista í leiknum. Þar fór fremstur í flokki Toney Douglas sem setti persónulegt met með því að skora 30 stig í leiknum, þar af fimm þrista. Raymond Felton var með 20 stig og tíu stoðsendingar og Amare Stoudemirre fjórtán stig og átta fráköst. Hjá Chicago var Derrick Rose með 24 stig og fjórtán stoðsendingar en hann var látinn hvíla síðustu tíu mínútur leiksins. Kyle Korver var með átján stig og Luol Deng sautján.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira