Lakers fór létt með Orlando Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. júní 2009 08:58 Leikmenn Orlando réðu ekkert við Kobe í nótt. Nordic Photos / Getty Images
LA Lakers átti ekki í miklum vandræðum með Orlando Magic í fyrsta leik liðanna í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í nótt. Lakers vann, 100-75. Kobe Bryant fór mikinn í leiknum og skoraði 40 stig. Fyrir honum var málið einfalt. „Mig langar virkilega mikið í titilinn. Flóknara er það ekki,“ sagði Kobe eftir leikinn. Fyrir ári síðan tapaði Lakers fyrir Boston í lokaúrslitunum og vilja Kobe og félagar ólmir bæta fyrir það tap nú í ár. Orlando var hins vegar að spila í lokaúrslitunum í fyrsta sinn síðan 1995. Og þó svo að liðið hafi unnið Lakers í báðum viðureignum sínum í deildakeppninni í vetur áttu þeir ekki roð í þá gulklæddu í nótt. Bryant skoraði átján stig í þriðja leikhluta er Lakers náði 26 stiga forystu í leiknum og gerði endanlega út um hann. Jameer Nelson lék sinn fyrsta leik með Orlando í fjóra mánuði eftir að hann gekkst undir aðgerð á öxl en það breytti engu. Dwight Howard skoraði ekki nema tólf stig í leiknum, þar af tíu af vítalínunni. Leikmenn Lakers voru duglegir að tví- eða þrídekka hann þegar hann var með boltann. Howard nýtti aðeins eitt skot af sex utan af velli og reyndar var heildarskotnýting Orlando ekki nema um 30 prósent í öllum leiknum. Liðið nýtti átta af 23 þriggja stiga tilraunum sínum. Pau Gasol skoraði sextán stig fyrir Lakers og Lamar Odom var með ellefu stig og fjórtán fráköst. Mickael Pietrus skoraði fjórtán stig fyrir Orlando og Hedo Turkoglu þrettán. Phil Jackson hefur á sínum ferli aldrei tapað rimmu í úrslitakeppninni þegar hans lið hefur unnið fyrsta leikinn í henni. Alls hefur það gerst í 43 rimmum Jackson til þessa. Næsti leikur liðanna er á sunnudagskvöldið.
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira