Körfubolti

Verður Boston nítjánda fórnarlamb Cleveland í röð?

Paul Pierce og LeBron James leiða saman hesta sína á Stöð 2 Sport klukkan eitt í nótt
Paul Pierce og LeBron James leiða saman hesta sína á Stöð 2 Sport klukkan eitt í nótt NordicPhotos/GettyImages

Sannkallaður risaleikur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan eitt í nótt þegar Cleveland tekur á móti meisturum Boston. Cleveland hefur unnið átján leiki í röð á heimavelli sínum Quicken Loans Arena.

Cleveland er í efsta sæti NBA deildarinnar ásamt LA Lakers með 28 sigra og aðeins sex töp, en Boston er ekki langt þar á eftir með 29 sigra og átta töp.

Meistararnir hafa hinsvegar verið langt frá sínu besta upp á síðkastið og hafa tapað sex af síðustu átta leikjum sínum eftir ótrúlega 27-2 byrjun.

Það má því segja að Quicken Loans Arena með 20,000 öskrandi aðdáendur Cleveland sé góður staður fyrir meistara Boston til að hrökkva í gang á ný.

"Þetta er ekki slæm prófraun fyrir okkur. Þetta verður gríðarlega erfiður leikur. Cleveland er að spila ótrúlega vel um þessar mundir. Kannski verður þessi leikur til að kveikja í okkur aftur - hver veit?" sagði Doc Rivers þjálfari Boston.

Boston og Cleveland eru langbestu liðin í Austurdeildinni ef tekið er mið af töflunni og þau mættust í sögulegu einvígi í annari umferð úrslitakeppninnar í fyrravor.

Boston hafði þá betur í sjö leikja rimmu þar sem liðið kláraði dæmið á heimavelli í oddaleik.

"Við munum enn eftir þessu einvígi, en menn verða að halda áfram ótrauðir. Það þýðir ekkert að velta sér upp úr fortíðinni í þessari deild," sagði LeBron James hjá Cleveland sem margir kalla besta körfuboltamann heims í dag.

Paul Pierce fyrirliði Boston og besti maður lokaúrslitanna í fyrra, veit alveg við hverju má búast í Cleveland í kvöld.

"Þetta er lið sem við sigruðum í úrslitakeppninni í fyrra. Þeir eru besta heimavallarliðið í deildinni og hafa eflaust hlakkað mikið til þessa leiks. Þeir munu mæta okkur af mikilli hörku og við verðum að svara þeim, því við vitum vel að þessi lið munu væntanlega mætast fyrr eða síðar í úrslitakeppninni," sagði Pierce.

Bæði lið eru með flesta sína menn heila en þó leikur Cleveland án miðherjans Zydrunas Illgauskas sem er meiddur og hefur Brasilíumaðurinn Anderson Varejao fyllt stöðu hans í byrjunarliðinu.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×