Handbolti

Einar Ingi skoraði fjögur gegn sænska landsliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Einar Ingi í leik með HK á síðasta tímabili.
Einar Ingi í leik með HK á síðasta tímabili. Mynd/Anton

Mosfellingurinn Einar Ingi Hrafnsson skoraði fjögur mörk fyrir þýska B-deildarliðið Nordhorn sem mætti sænska landsliðinu í æfingaleik í dag.

Svíar fóru með öruggan sigur af hólmi, 43-29, en þjálfari sænska landsliðsins er Ola Lindgren sem þjálfar einnig Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen.

Lindgren er þó öllum hnútum kunnugur hjá Nordhorn en hann var fyrst leikmaður og svo þjálfari liðsins í samtals ellefu ár, allt þar til að félagið var lýst gjaldþrota í fyrra.

Svíar taka svo þátt í æfingamóti í Þýskalandi síðar í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×