Handbolti

Kolding tryggði sér oddaleik á móti FCK

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðlaugur Arnarsson.
Guðlaugur Arnarsson.
Guðlaugi Arnarssyni og félögum í FCK Kaupmannahöfn tókst ekki að tryggja sér danska meistaratitilinn í handbolta í dag þegar þeir töpuðu 32-37 á móti Kolding í öðrum leik liðanna í lokaúrslitunum.

FCK vann 34-32 sigur í fyrsta leiknum á sínum heimavelli og nægði jafntefli í leiknum í Kolding í dag. Kolding menn fengu hinsvegar frábæran stuðning, fylltu 3000-manna höll sína og unnu fimm marka sigur eftir að hafa verið 19-16 yfir í hálfleik.

Guðlaugur Arnarsson var ekki meðal markaskorara FCK í leiknum en hann skoraði eitt mark í fyrsta leiknum. Oddaleikurinn fer fram á heimavelli FCK á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×