Bynum aftur úr leik hjá Lakers 3. febrúar 2009 09:25 NordicPhotos/GettyImages
Miðherjnn ungi Andrew Bynum hjá LA Lakers verður frá næstu tvo til þrjá mánuðina eftir að í ljós kom að hann er með rifið liðband í hægra hné. Bynum meiddist á hné á svipuðum tímapunkti á síðustu leiktíð og kom þá ekki meira við sögu. Lið Lakers þurfti því að vera án hans í úrslitakeppninni. Miðað við þann tíma sem talað er um að Bynum verði frá að þessu sinni ætti hann að geta byrjað að spila á ný þegar úrslitakeppnin hefst í vor, en hingað til hefur pilturinn ekki sýnt fram á að vera fljótur að ná sér eftir meiðsli. Þetta eru slæm tíðindi fyrir Lakers-liðið sem sannarlega þarf á sterkum miðherja að halda í úrslitakeppninni eins og kom í ljós í lokaúrslitunum gegn Boston síðasta sumar. Bynum er þriðgi stigahæsti leikmaður Lakers og annar frákastahæsti maður liðsins með 14 stig, 8,2 fráköst og tæp 2 varin skot að meðaltali í leik. Hann var hinsvegar með 26 stig, 14 fráköst og 3 varin skot að meðaltali í síðustu fimm leikjum sínum áður en hann meiddist. Bynum meiddist þegar hann lenti í samstuði við Kobe Bryant í leik gegn Memphis á laugardaginn. Hann er 21 árs gamall.
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira