Handbolti

Belgar engin fyrirstaða fyrir Makedóna

Ómar Þorgeirsson skrifar
Belgar töpuðu gegn Makedónum í kvöld.
Belgar töpuðu gegn Makedónum í kvöld. Mynd/Stefán

Makedónía vann í kvöld sjö marka sigur gegn Belgíu, 33-26, í undankeppni EM 2010 en leikurinn fór fram í Skopje í Makedóníu.

Makedóníumenn leika sem kunnugt er í sama riðli og Ísland og eru með sjö stig eftir sigurinn í kvöld en Ísland og Noregur eru með níu stig.

Íslandi tryggir sér farseðill á lokakeppnina í Austurríki á næsta ári með sigri gegn Noregi á morgun.

Makedónar koma í heimsókn til Íslands í næstu viku og mæta Íslendingum í höllinni á þjóðhátíðardaginn 17. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×