Bynum og Bryant fóru á kostum gegn Clippers 22. janúar 2009 09:39 Andrew Bynum (17) fór á kostum í liði Lakers í nótt AP
Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. LA Lakers vann 108-97 sigur á grönnum sínum í LA Clippers þar sem Andrew Bynum spilaði besta leik sinn á ferlinum til þessa. Bynum nýtti sér fjarveru miðherjans Marcus Camby í liði Clippers og skilaði 42 stigum og 15 fráköstum. Kobe Bryant var með þrennu í leiknum, 18 stig, 12 stoðsendingar og 10 fráköst. Nýliðinn DeAndre Jordan stóð sig vel hjá Clippers með 23 stig og 12 fráköst. Boston vann sjötta leikinn í röð þegar það lagði Miami 98-83. Ray Allen skoraði 27 stig fyrir Boston en Dwyane Wade 25 fyrir Miami. Mike D´Antonio vann sigur með nýja liðinu sínu New York gegn gamla liðinu sínu Phoenix 114-109. New Orleans lagði New Jersey 102-92 þar sem Chris Paul var hársbreidd frá þrennu með 29 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Dallas steinlá fyrir Milwaukee 133-99 þrátt fyrir 30 stig frá Dirk Nowitzki. Charlie Villanueva skoraði 32 stig og hirti 10 fráköst fyrir Milwaukee. Houston lagði Utah í viðureign liðanna sem mæst hafa í fyrstu umferð úrslitakeppninnar síðustu tvö ár. Deron Williams skoraði 32 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir Utah en Rafer Alston skoraði 23 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Houston. Cleveland náði sér á strik eftir tap fyrir LA Lakers með því að skella Portland á sterkum útivelli 104-98. LeBron James skoraði 34 stig og gaf 14 stoðsendingar fyrir Cleveland en Brandon Roy skoraði 23 stig fyrir heimamenn. Detroit vann öruggan sigur á Toronto 95-76, Charlotte vann enn einn leikinn þegar það skellti Memphis 101-86, Washington lagði Sacramento úti 110-107 og Oklahoma virðist vera að ná lífsmarki eftir 122-121 sigur á Golden State þar sem Jeff Green tryggði Oklahoma sigurinn með flautukörfu. Staðan í deildinni
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Sjá meira