Handbolti

HM í Kína: Florentina Stanciu varði vel í fyrsta leik Rúmeníu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Florentina Stanciu, markvörður Stjörnunnar  og Rúmeníu.
Florentina Stanciu, markvörður Stjörnunnar og Rúmeníu. Mynd/Vilhelm

Florentina Stanciu, markvörður Stjörnunnar í N1 deild kvenna og landsliðsmarkvörður Rúmeníu byrjaði vel með félögum sínum í rúmenska landsliðinu á HM í kvennahandbolta í Kína sem hóst í morgun. Florentina lék síðari hálfleikinn í 51-17 sigri á Chile.

Florentina Stanciu varði 13 af 23 skotum sem komu á hana sem gerir 57 prósent markvörslu og er 4 prósentum betri markvarsla en hjá aðalmarkverðinum Paulu Ungureanu í fyrri hálfleik. Florentina átti auk þess tvær stoðsendingar fram í hraðaupphlaup.

Florentina varði öll 13 skotin sín í návígi, 6 úr horni (86%), 5 af línu (63%) og svo 1 víti (50%) og 1 úr hraðaupphlaupi (50%).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×