Handbolti

Sigurmark Ásgeirs og fagnaðarlæti Guðmundar - myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með íslenska landsliðinu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/AP

Ásgeir Örn Hallgrímsson tryggði sínum mönnum í GOG sigur á toppliði Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Ásgeir Örn var að spila sinn fyrsta leik eftir langvarandi meiðsli og skoraði hann þrjú mörk í leiknum, þar af sigurmarkið á lokasekúndum leiksins eftir laglega leikfléttu leikmanna GOG.

Bjerringbro-Silkeborg var með fullt hús stiga fyrir leikinn en liðið er nú með sextán stig eftir níu leiki, rétt eins og GOG. Liðin eru í 2.-3. sæti deildarinnar en Kolding er á toppnum með sautján stig.

Smelltu hér til að sjá myndskeiðið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×