Handbolti

Ólafur var traustur á lokasprettinum í sigri Ciudad Real í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Stefánsson var dýrmætur í lokin í sigri Ciudad í kvöld.
Ólafur Stefánsson var dýrmætur í lokin í sigri Ciudad í kvöld. Mynd/Vilhelm

Ciudad Real heldur áfram tveggja stiga forustu sinni á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir 26-19 sigur á Portland á útivelli í kvöld. Barcelona vann á sama tíma nauman sigur á Antequera og fylgir Ciudad sem skugginn.

Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Ciudad Real og var markahæstur í liðinu ásamt Svíanum Jonas Kallmann. Ólafur skoraði fjögur af mörkum sínum af vítalínunni en hann skoraði 1 mark úr 3 langskotum í leiknum.

Ólafur skoraði þrjú mörk Ciudad Real í röð í lokin þegar liðið var að vinna leikinn. Ólafur breytti meðal annars stöðunni úr 20-18 í 22-18 með tveimur mörkum af vítalínunni. Ciudad skoraði síðan næstu fjögur mörk og gerði út um leikinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×