Handbolti

Omeyer bestur í Þýskalandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Thierry Omeyer.
Thierry Omeyer.

Franski markvörðurinn Thierry Omeyer hefur verið valinn leikmaður ársins í þýska handboltanum.

Omeyer fór sem fyrr á kostum í markinu hjá Kiel í vetur og undirstrikaði enn og aftur að hann er langbesti markvörður heims.

Félagar hans hjá Kiel, Filip Jicha og Nikola Karabatic, komu næstir í kjörinu.

Kiel vann þýsku deildina með fáheyrðum yfirburðum og varð einnig þýskur bikarmeistari.

Liðið tapaði aftur á móti fyrir Ciudad Real í úrslitum Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×