Handbolti

Gummersbach í góðri stöðu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson í leik með Gummersbach.
Róbert Gunnarsson í leik með Gummersbach. Nordic Photos / Getty Images

Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach sem vann sigur á Gorenje Velenje, 29-28, í fyrri úrslitaleik liðanna í EHF-bikarkeppninni.

Leikurinn fór fram í Slóveníu en sá síðari fer fram annan mánudag í Þýskalandi. Þar dugir Gummersbach jafntefli til að tryggja sér titilinn.

Gummersbach var mest með fjögurra marka forystu í leiknum en heimamenn náðu að minnka muninn í eitt mark undir lok leiksins.

Momir Ilic var markahæstur leikmanna Gummersbach með átta mörk, þar af eitt úr víti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×