Nowitzki er til í launalækkun 23. desember 2008 14:04 Dirk Nowitzki hefur gott skopskyn eins og sjá má á þessari mynd
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks í NBA deildinni segist vera tilbúinn að taka á sig launalækkun þegar samningi hans lýkur eftir tvö ár ef það þýði að félagið geti bætt við sig gæðaleikmönnum. Samningur Þjóðverjans kemur til endurskoðunar eftir næstu leiktíð, en árið eftir ætti hann möguleika á að þéna rúma 21 milljón dollara. Árið 2010 verður stórt ár í NBA deildinni þegar menn á borð við LeBron James, Dwyane Wade, Chris Bosh, Amare Stoudemire og Joe Johnson verða með lausa samninga. "Öll liðin í deildinni stefna á að hafa pláss undir launaþakinu þetta ár til að geta náð sér í góða leikmenn. Ég er það heppinn að hafa unnið mér inn mikla peninga í þessari deild þó ég hafi aldrei spilað fyrir peninga. Ég elska leikinn og félagið mitt og vil auðvitað vinna titil," sagði Nowitzki, sem var kjörinn verðmætasti leikmaður deildarinnar árið 2006. "Ég hef verið kjörinn verðmætasti leikmaður deildarinnar og nú vantar mig bara meistaratitil. Ef það þýðir að ég þurfi að spila fyrir minni peninga, þá er ég alveg opinn fyrir því," sagði Nowitzki í samtali við Dallas Morning News. Eigandi Mavericks, Mark Cuban, er ánægður með orð leikmannsins og fagnar yfirlýsingum hans. "Dirk er Dirk. Hann er maður sem spilar fyrir liðið og einstakur maður. Við höfum alist upp hjá þessu félagi saman og höfum alltaf reynt að vera á sömu blaðsíðunni á allan hátt," sagði eigandi félagsins.
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira