Kvöld með eiginkonunni fyrir Celtics-miða 12. júní 2008 20:04 Stuðningsmenn Boston eru tilbúnir að ganga ansi langt til að sjá hetjur sínar spila NordcPhotos/GettyImages
Fárið í kring um úrslitaeinvígið í NBA deildinni virðist nú komið á suðumark. Stuðningsmaður Boston liðsins hefur þannig boðið hverjum þeim sem útvegar honum aðgöngumiða á Boston-leik að eiga kvöld með eiginkonu sinni. Þetta óvenjulega tilboð minnir um margt á kvikmyndina Indecent Proposal, þar sem maður leikinn af Robert Redford bauð hjónum (Woody Harrelson og Demi Moore) eina milljón dollara fyrir nótt með eiginkonunni. Það skal tekið fram að eiginkona stuðningsmanns Celtics er til í að láta reyna á þetta óvenjulega fyrirkomulag ef það verður til þess að útvega bónda hennar miða. Hjónin settu auglýsingu í einkamáladálk á netsíðu og segjast þau hafa fengið nokkur tilboð sem "virðast koma frá eðlilegu fólki" Þess má geta að tilboðinu fylgir ekkert ósiðlegt, heldur er aðeins boðið upp á kvöldverð, drykk og félagsskap eiginkonunnar - sem lýst er sem dökkhærðri og fallegri konu í auglýsingunni. "Ég hef verið stuðningsmaður Boston alveg síðan Larry Bird var að spila með liðinu og nú er ég kominn á fertugsaldurinn. Maður missir sig bara í spennunni yfir því að sjá liðið loksins vera komið í lokaúrslitin á ný. Það er ekki auðvelt fyrir venjulega menn að útvega sér miða á þessa leiki. Ég er bara venjulegur maður sem vill styðja sitt lið," sagði eiginmaðurinn.
NBA Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira