Bynum framlengir við Lakers 30. október 2008 19:41 Andrew Bynum er hér í baráttu við Greg Oden hjá Portland, en þeir eru tveir af efnilegustu miðherjum NBA deildarinnar NordicPhotos/GettyImages
Miðherjinn ungi Andrew Bynum hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við LA Lakers sem tekur gildi næsta vetur. Samningurinn gæti fært honum 58 milljónir dollara í laun á samningstímanum samkvæmt LA Times. Bynum er 21 árs gamall og er talinn mikið efni, en hann meiddist í janúar á síðustu leiktíð og spilaði ekki meira með liðinu á tímabilinu. Hann missti því af úrslitaeinvígi Lakers og Boston í sumar. Hann hefur lengi staðið í samningaviðræðum við Lakers en umboðsmaður hans hafði heimtað fimm ára samning með 17 milljónir dollara að meðaltali í árslaun, en forráðamenn Lakers voru aðeins tilbúnir að borga honum um 11 milljónir að meðaltali á ári. Lendingin var sú að hann fær rúmar 14 milljónir árlega að meðaltali á samningstímanum og þar af fær hann 42 milljónir fyrir fyrstu þrjú árin - með möguleika á fjórða árinu fyrir 16 milljónir. Bynum er með 2,8 milljónir dollara í árslaun í vetur, en ef samkomulag þetta hefði ekki tekist milli aðila í dag - hefðu önnur félög geta boðið honum samning frá og með júlí nk. Lakers hefði þó geta jafnað hvert það tilboð sem í hann hefði borist. Miðherjinn ungi skoraði 13 stig, hirti 10 fráköst og varði rúm 2 skot að meðaltali í leik með liði Lakers í fyrra í þeim 35 leikjum sem hann spilaði. Hann er að margra mati lokapúslið í liði Lakers sem ætti að verða í fremstu röð næstu árin.
NBA Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira