Fyrsti sigur Oklahoma Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2008 09:30 Kevin Durant á leið í troðslu í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Oklahoma City Thunder, sem áður hér Seattle Supersonics, vann sinn fyrsta sigur í NBA-deildinni í nótt er liðið vann Minnesota, 88-85. Leikurinn var æsispennandi en nýliðinn Russell Westbrook kom Oklahoma í forystu, 86-85, þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. Minnesota skoraði hins vegar ekki úr síðustu sex sóknum sínum í leiknum og Oklahoma vann sinn fyrsta sigur í stuttri sögu liðsins. Oklahoma var undir í þriðja leikhluta en liðið tók þá 13-0 sprett sem dugði til að koma því aftur inn í leikinn. Kevin Durant skoraði átján stig fyrir Oklahoma og Westbook fjórtán. Jeff Green var með þrettán stig. Al Jefferson var stigahæstur hjá Minnesota með 24 stig og þrettán fráköst. Craig Smith var með þrettán stig og Ryan Gomes tólf. Lítið virðist ganga hjá Mike D'Antoni og lærisveinum hans í New York Knicks. Liðið tapaði í nótt á heimavelli fyrir Milwaukee, 94-86. Staðan í hálfleik var 49-45, Milwaukee í vil sem skoraði svo fyrstu tólf stigin í þriðja leikhluta. Það reyndist of mikill munur fyrir New York. Sterkur varnarleikur færði Milwaukee sigurinn í nótt en Scott Skiles, fyrrum þjálfari Chicago, hefur breytt einu slakasta varnarliði NBA-deildarinnar í öflugt varnarlið nú í upphafi tímabilsins. Richard Jefferson og Ramon Sessions voru báðir með átján stig í leiknum og þeir Charlie Villanueva og Michael Redd voru með sextán hvor. Hjá New York var Quentin Richardson stigahæstur með 28 stig. Zach Randolph var með fimmtán og þrettán fráköst og Nate Robinson fjórtán stig.
NBA Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Íslenski boltinn „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ Íslenski boltinn McIlroy varði Masters-titilinn Golf Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ Fótbolti Brynja og Svíinn fögnuðu eftir magnað kvöld í Sjallanum Sport Fleiri fréttir Tryggvi tókst á við Barcelona Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Elvar og Martin í miklu stuði Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum „Allir að tikka inn og vörnin var bara framúrskarandi“ Hamar/Þór með stórsigur í fyrsta úrslitaleiknum Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 2-1 | Deildarmeistararnir taka forystuna í einvíginu „Galið“ að Stjörnumenn spili sig sem fórnarlömb Sonurinn sendi á pabbann fyrir sögulega körfu Botnlanginn fjarlægður úr Embiid Grindavík sópaði Val í sumarfrí KR - Keflavík 94-80 | Thomas tók yfir í fjórða leikhluta Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Uppgjörið:Njarðvík - Tindastóll 88-87| Dramatískar lokasekúndur þegar Njarðvík sópaði Tindastól Vildu alls ekki fara í sumarfrí en Haukar höfðu betur Martin úr leik í Meistaradeildinni Tryggvi á leið í úrslitaleik annað árið í röð Dallas Mavericks segja ekkert til í ásökunum þjálfara Lakers Finnur Freyr komst loksins fram úr Friðriki Inga Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Uppgjörið: ÍR - Tindastóll 90-98 | Stólarnir stigu stórt skref í átt að undanúrslitum Shaq er að byrja með nýja troðsludeild Keflavíkurstrákarnir urðu Scania-meistarar og áttu Scania-kónginn Þórir: Við lærðum bara af fyrsta leiknum Sjá meira