Ferguson hlakkar til að mæta Mourinho Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2008 13:58 Jose Mourinho og Alex Ferguson þekkjast vel úr enska boltanum. Nordic Photos / AFP
Það verður sannkallaður stórslagur í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu þegar núverandi meistarar, Manchester United, mætir Inter, toppliði ítölsku úrvalsdeildarinnar. Þarna mætast á ný þeir Alex Ferguson, stjóri United, og Jose Mourinho, stjóri Inter en hann hefur margsinnis stýrt Chelsea gegn United á sínum ferli auk þess sem hann var stjóri Porto þegar liðið sló United úr Meistaradeildinni árið 2004. „Það verður afar athyglisvert að mæta Jose á nýjan leik," sagði Ferguson í samtali við sjónvarpsstöð Manchester United. „Hann sló okkur úr leik þegar hann var með Porto þannig að ég vonast til að við verðum með þær lukkudísir sem hann var með á sínu bandi þá." Mourinho var rekinn frá Chelsea fyrir fimmtán mánuðum síðan og verður þetta í fyrsta sinn sem hann stýrir liði á Bretlandseyjunum síðan þá. En fyrst mætast liðin á San Siro og segir Ferguson að úrslit þess leiks muni skipta sköpum. „Vonandi náum við góðum úrslitum í fyrri leiknum sem gefur okkur góða stöðu fyrir leikinn á Old Trafford. San Siro er frábær leikvangur en við höfum tvisvar tapað fyrir AC Milan í undanúrslitunum þar. Við viljum gjarnan snúa því gengi við."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira