Innlent

Á 160 kílómetra hraða á leið til kærustunnar

Tveir ökumenn á fertugsaldri voru teknir fyrir ofsaakstur í Reykjavík á laugardag. Annar ökumaðurinn sem var á um 160 kílómetra hraða gaf þá skýringu að hann þyrfti að koma farsíma kærustunnar sem hann hafði undir höndum til hennar og mátti það ekki þola neina bið. Sá hefur áður verið staðinn að hraðaakstri en þó aldrei í líkingu við ofsaaksturinn á laugardag.

Ökumennirnir mældust báðir á um 160 kílómetra hraða og var annar tekinn á Sæbraut og hinn í Ártúnsbrekku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×