Ekki mat Persónuverndar 29. desember 2006 18:30
Persónuvernd hefur ekki fengið beiðni um að úrskurða um lögmæti þess að Norðurál ætli að láta starfsmenn sína gangast undir lyfjapróf til að ganga úr skugga um að þeir noti ekki ólöglega vímugjafa. Málefnaleg rök þurfa að liggja til grundvallar slíkum aðgerðum að sögn lögfræðings Persónuverndar. Þau tíðndi að Norðurál á Grundartanga ætli að láta alla 400 starfsmenn sína gangast unir lyfjapróf hefur vakið athygli. Haft er eftir Ragnari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Norðuráls í fréttum Útvarpsins að starfsfólkið hafi stungið upp á þessu og að ekkert í lögum um persónuvernd banni svona próf. Það hefur þó ekki á það reynt. Þórður Sverrisson, löfræðingur hjá Persónuvernd segir að ekkert erindi hafi borist um að stofnunin leggi mat á þetta mál - hvorki frá starfsfólki né frá fyrirtækinu. Hann segir að almennt gildi sú regla að málefnaleg rök verði að liggja til grundvallar aðgerð af þessu tagi. Fá fordæmi liggja fyrir um sambærileg mál. Þórður nefnir þó sem dæmi úrskurð sem snéri að lyfjafyrirtækinu Actavis. Þar vildi fyrirtækið að verðandi starfsmenn fengju vottorð frá lækni um að umsækjendur hefðu ekki smitsjúkdóm sem gæti ógnað öryggi lyfjaframleiðslunnar. Persónuvernd féllst á að þetta teldust málefnaleg rök og heimilaði þessa kröfu. Nú liggur ekki fyrir hvaða rök liggja til grundvallar ákvörðun Norðuráls - hvort þar er vísað til öryggis á hættulegum vinnustað eða annars - og ekki heldur hvort Persónuvernd teldi slík rök málefnaleg og ástæðurnar nægjanlega brýnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira