Innlent

Þremur mönnum bjargað

Þremur mönnum var bjargað þegar bátur þeirra sökk vestur af Snæfellsnesi í kvöld. TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarskipið Björg frá Rifi voru send á vettvang.

Mönnunum var bjargað um borð í skemmtibát sem var í nágrenninu. Þaðan voru þeir fluttir um borð í björgunarskipið sem flytur þá að Rifi. Neyðarkall frá mönnunum barst um klukkan níu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×