Innlent

Bifhjólamaður á of miklum hraða

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði bifhjólamann á Kjalarnesi í gær eftir að lögreglan í Borgarnesi hafði mælt hann á eitthvað á þriðja hundrað kílómetra hraða í grennd við bæinn. Þrátt fyrir þennan mikla hraða hóf Borgarneslögreglan eftirför, en maðurinn hvarf þeim sjónum.

Var þá haft samband við Reykjavíkurlögregluna, sem gerði manninum fyrirsát á Kjalarnesi. Það skýrist í dag þegar lögreglan fer nánar yfir mælitæki sín úr lögreglubílnum, hvort þetta er mesti hraði, sem mælst hefur hér á landi til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×