Erlent

Þrír ísraelskir hermenn létust

Þrír ísraelskir hermenn létust og tveir særðust í eldflaugaárás Hizbolla-skæruliða í Suður-Líbanon í morgun, að sögn Al Arabiya fréttastöðvarinnar.

Árásir Ísraelshers á Beirút, höfðuborg Líbanons, héldu áfram í nótt og í morgun en leiðtogi Hizbollah-samtakanna, Hassan Nasrallah, hafði áður hótað því að ráðast á Tel Aviv, stærstu borg Ísraels, ef Ísraelsmenn gerðu loftárásir á borgina. Yfirvöld í Ísrael sögðu að Ísraelsher myndi eyðileggja alla undirbyggingu stjórnskipulags Líbanons gerðu Hizbolla-liðar alvöru úr þessum hótununum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×