Erlent

Björgólfur Thor á lista yfir þá ríkustu

Björgólfur Thor Björgólfsson er númer 350 á lista Forbes yfir ríkustu menn veraldar.
Björgólfur Thor Björgólfsson er númer 350 á lista Forbes yfir ríkustu menn veraldar. MYND/Stefán Karlsson

Björgólfur Thor Björgólfsson er númer 350 á lista yfir ríkustu menn veraldar sem Forbes viðskiptatímaritið birtir. Eignir Björgólfs eru metnar á 2,2 milljarða bandaríkjadollara eða sem nemur tæpum 140 miljörðum króna.

Hann færst upp um heil 138 sæti síðan á síðasta ári. Fjöldi þeirra sem eiga meira en einn milljarð dollara hefur aldrei verið meiri og nú komast rétt tæplega 800 manns í þann hóp.

Tólfta árið í röð er Bill Gates ríkasti maður veraldar og eru eignir hans metnar á um 50 milljarða dollara, sem eru röskir 3000 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×