Innlent

Yfir 2.500 laxar hafa veiðst

Hofsá í Vopnafirði
Hofsá í Vopnafirði

Góð veiði hefur verið í vopnfirskum ám í sumar og höfðu 1.572 laxar veiðst í Selá og 1.050 í Hofsá í síðustu viku.

Þrjár vikur eru síðan veiði hófst í Vesturdalsá, en þar er verið að byggja ána upp að nýju eftir mikla veiði á árum áður og þar er nær öllum fiski sleppt aftur.

Nokkuð hefur orðið vart við örlaxa í íslenskum laxveiðiám í sumar, þar á meðal Vopnafjarðaránum. Á Írlandi og Bretlandseyjum hafa menn vaxandi áhyggjur vegna örlaxa en þar sáust varla smálaxar í eðlilegum holdum í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×