Innlent

Komu niður á þriðja húsið

Uppgröftur Hópurinn kom í gær niður á þriðja húsið í verkefninu Pompei norðursins.
Uppgröftur Hópurinn kom í gær niður á þriðja húsið í verkefninu Pompei norðursins.

Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar eru nú komnir niður á þriðja húsið sem grafið verður upp í verkefninu Pompei norðursins. Stefnt er að því að grafa upp sjö til tíu hús áður en verkefninu lýkur.

Tilgangurinn með þessum uppgreftri er sá að þarna verði til safn sem sýnir þessa ungu en merkilegu gossögu okkar, segir Kristín Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri uppgraftrarins.

Kristín segir ótrúlegt hversu vel húsin komi undan vikrinum og til að mynda sé málningin mjög heilleg á útveggjum húsanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×