Innlent

Fræða börnin

Skrifað undir Ellý Katrín og Birgir skrifuðu undir samninginn í fyrradag.
Skrifað undir Ellý Katrín og Birgir skrifuðu undir samninginn í fyrradag.

Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri umferðar­öryggissviðs Umferðarstofu, og Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstýra umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, undirrituðu í fyrradag samstarfssamning til þriggja ára. Samningurinn felur í sér styrk til umferðarfræðslu skólabarna og almennings í Reykjavík.

Reykjavíkurborg mun veita árlegan styrk upp á átta milljónir króna til fastra verkefna, meðal annars útgáfu fræðsluefnis tengdu umferðarskólanum Ungir vegfarendur, umferðarfræðslu í leikskólum og jólagetraunar Umferðarstofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×