Innlent

Haldið sofandi á gjörgæslu

JonathanMotzfeldt
JonathanMotzfeldt

Jonathan Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum en hann var fluttur þangað frá Grænlandi á fimmtudag. Motzfeldt hefur verið greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar.

Alma Möller, yfirlæknir á gjörgæsludeild, segir ástand Motzfeldt stöðugra og að hann sé á hægum batavegi. Alma segir að ástand hans sé metið dag frá degi og ekki sé hægt að segja til um hvenær Motzfeldt kemst til meðvitundar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×