Innlent

Einn sá yngsti frá upphafi

Pilturinn sem kærður hefur verið fyrir að nauðga sextán ára gamalli stúlku á sunnudagskvöldið er einn sá yngsti sem kærður hefur verið fyrir þess háttar brot, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík og Barnaverndarstofu.

Tveir félagar piltsins, sem er fimmtán ára gamall og því rétt innan marka þess að teljast sakhæfur, voru einnig kærðir til lögreglu fyrir að koma ekki stúlkunni til hjálpar þegar ráðist var á hana í aftursæti bifreiðar sem var í eigu félaga þeirra, sem ekki var í bifreiðinni. Sakhæfisaldur er fimmtán ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×