Sport

Sex æfingaleikir í NBA í nótt

NordicPhotos/GettyImages
Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar á meðal var leikur LA Lakers og Denver Nuggets, sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Leikurinn var hin besta skemmtun, en það voru gestirnir frá Denver sem voru sterkari og sigruðu 105-94. Þá háðu Allen Iverson og LeBron James mikið einvígi í nótt. Cleveland hafði betur í slagnum við Philadelphia, 106-102, en LeBron James skoraði 30 stig fyrir Cleveland og Iverson skoraði 36 fyrir Philadelphia og átti 7 stoðsendingar. Washington lagði Charlotte 96-89, Indiana lagði Minnesota 93-76, San Antonio lagði New Orleans 97-90 og Utah vann Portland 92-73.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×