Sport

Curry með hjartað á réttum stað

Miðherjinn Eddy Curry, sem nýverið gekk í raðir New York Knicks frá Chicago Bulls, skoraði 16 stig í fyrsta æfingaleik sínum með liðinu um helgina, eftir að hafa fengið grænt ljós á að spila þrátt fyrir að hafa tvisvar greinst með óreglulegan hjartslátt á ferlinum. Curry var í gær spurður út í sviplegt fráfall miðherjans Jason Collier um helgina, en talið er að hann hafi látist úr hjartaáfalli. "Ég ætla nú að vona að menn fari ekki að velta sér upp úr því hvort ég er í lagi á þessum sorglegu tímum," sagði Curry. "Ég hef fengið fulla heimild til að spila á ný, en eins og við mátti búast er fólk að spyrja mig út í þetta," sagði hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×