Sport

Drungi á æfingum Atlanta Hawks

"Ég hef lent í ýmsu á 23 ára ferli sem þjálfari, en ekkert getur búið mann undir svona lagað," sagði Mike Woodson, þjálfari Atlanta Hawks, sem í gær stýrði fyrstu æfingu liðsins eftir að miðherjinn Jason Collier lét lífið á heimili sínu um helgina. Enn hefur ekki verið gengið úr skugga um dánarorsök Collier, en krufning fer fram í dag. Leikmenn Atlanta eru mjög slegnir yfir þessum atburði og það sama má í raun segja um alla leikmenn deildarinnar, sem sendu samúðarkveðjur sínar til félaga hans og fjölskyldu um helgina. "Ég verð víst að gera mitt besta til að reyna að koma mönnum yfir þennan hræðilega atburð, en það á eftir að verða mjög erfitt. Jason verður sárt saknað," sagði Woodson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×