Sport

Njarðvík spáð sigri í körfunni

Mynd/Víkurfréttir
Njarðvíkingum er spáð efsta sætinu í IcelandExpress deildinni í körfubolta karla í vetur, en Keflvíkingum í kvennaflokki. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag, þar sem þjálfarar og leikmenn kunngerðu spá sína um niðurröðun liða í efstu deild í vetur. Njarðvíkingar hlutu 408 atkvæði í efsta sæti, en grannar þeirra, Íslandsmeistarar Keflavíkur höfnuðu í öðru sæti með 389 stig og Grindvíkingar komu næstir með 365 stig. Sameiginlegu liði Hamars og Selfoss er spáð falli með 100 stig og allir virtust á einu máli með örlög nýliða Hattar, sem fengu aðeins 46 stig og höfnuðu í neðsta sæti. Í kvennaflokki var það sem fyrr segir lið Keflavíkur sem hafnaði í efsta sætinu með 102 stig, en næstar komu Grindavíkurstúlkur með 84 og þá Haukar með 70 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×