Sport

Njarðvík leiðir í hálfleik

Njarðvíkingar eru yfir í hálfleik gegn grönnum sínum í Keflavík í meistarakeppni KKÍ, en leikurinn fer fram í Keflavík og er viðureign Íslands- og bikarmeista síðasta árs. Staðan er 46-42 fyrir Njarðvík í fjörugum leik. Stigahæstur hjá Njarðvík er Jeb Ivey með 17 stig, en Brenton Birmingham hefur skorað 10 stig. Magnús Þór Gunnarsson er stigahæstur hjá Keflvíkingum með 14 stig, en Jason Kalsow hefur skorað 9 stig, hirt 8 fráköst og gefið 4 stoðsendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×