Sport

Skipti hjá Toronto og Houston

Leikstjórnandinn Rafer Alston er farinn frá Toronto Raptors til Houston Rockets í skiptum fyrir Mike James. Alston er hæfileikaríkur leikmaður sem skoraði að meðaltali 14,2 stig og gef 6,4 stoðsendingar á síðasta tímabili hjá Kanadaliðinu, en komst oftar en einu sinni upp á kant við þjálfara og forráðamenn liðsins í fyrra. Mike James hefur verið á mála hjá fjölda liða á ferlinum og þrítugur. Toronto var með þessum skiptum að lækka hjá sér launakostnaðinn, en hinn 29 ára gamli Alston er talinn muni smella ágætlega inn í lið Houston Rockets, sem ætlar sér stóra hluti í vetur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×