Sport

Best á batavegi

Knattspyrnugoðið George Best er sagður á batavegi eftir að hafa lagst inn á sjúkrahús í London á dögunum, en er enn á gjörgæsludeild. Hann var lagður inn vegna flensueinkenna og fékk alvarlega sýkingu í nýru um helgina. George er að braggast og hann er farinn að tala meira en hann gerði," sagði talsmaður hans í dag, en sagði jafnframt að hann yrði líklega fjóra til fimm daga í viðbót á gjörgæsludeildinni. Talið er að veikindi Best stafi af viðbrögðum líkama hans við mikilli lyfjaneyslu í kjölfar þess að grædd var í hann ný lifur fyrir nokkrum árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×