Sport

Bandaríkin í efsta sæti hjá FIBA

NordicPhotos/GettyImages
Bandaríkin eru enn í efsta sæti styrkleikalista FIBA í körfubolta, þrátt fyrir að hafa ekki riðið feitum hesti frá stórkeppnum að undanförnu. Evrópumeistarar Grikkja verða að láta sér lynda áttunda sætið á listanum. Hér má sjá tíu efstu þjóðirnar á listanum, en athygli vekur að silfurlið Þjóðverja af nýafstöðnu Evrópumóti komast ekki inn á topp tíu listann, og Serbar, sem flokkast undir lið Júgóslavíu, halda öðru sæti á listanum frá því hann var síðast birtur. 1. Bandaríkin 832,2 stig 2. Júgóslavía 708,0 stig 3. Argentína 700,0 stig 4. Litháen 460,0 stig 5. Spánn 439,0 stig 6. Ítalía 433,0 stig 7. Rússland 362,0 stig 8. Grikkland 304,0 stig 9. Ástralía 279,0 stig 10. Frakkland 273,0 stig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×