Sport

Logi byrjaði vel

Logi Gunnarsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir þýska 2.deildarliðið Bayreuth um helgina. Bayreuth vann Stuttgart með eins stigs mun, 91-90. Logi var stigahæsti leikmaður Bayreuth með 25 stig og þar af komu fimmtán úr þriggjastiga skotum. Greinilegt er á öllu að Logi er að finna sig vel hjá Bayreuth en hann er einn af lykilmönnum liðsins. Næsti leikur hjá Bayreuth fer fram á miðvikudaginn en það er gegn liði Wurzburg, en með því lék NBA stjarnan Dirk Nowitzki áður en hann gekk til liðs við Dallas Mavericks.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×