Sport

Bolton áfram á elleftu stundu

Úrvalsdeildarlið Bolton tryggði sér dramatískan sigur á búlgarska liðinu Lokomotiv Plovdov í Evrópukeppni félagsliða nú rétt áðan. Bolton vann fyrri leik liðanna á heimavelli á dögunum 2-1, en lenti undir á 52. mínútu í dag og um tíma leit út fyrir að liðið væri að falla úr keppni fyrir minni spámönnum. Heimamenn í Lokomotiv urðu fyrir því áfalli að skora sjálfsmark 10 mínútum fyrir leikslok og það var svo Kevin Nolan sem tryggði liðinu farseðilinn í riðlakeppnina með því að skora sigurmark Bolton á 87. mínútu. Það má því með sanni segja að heilladísirnar hafi verið með Stóra-Sam og félögum í Bolton í dag



Fleiri fréttir

Sjá meira


×