Sport

Jewell sló á létta strengi

NordicPhotos/GettyImages
Paul Jewell, stjóri Wigan, sló á létta strengi í viðtali eftir sigurinn á Everton í gær, en Wigan hefur byrjað leiktíðina betur en nokkur þorði að vona. Hann lét menn sína heyra það í hálfleik og uppskar enn einn óvæntan sigur á tímabilinu. "Ég lét strákana heyra það í hálfleiknum og sagði þeim eins og var að þeir væru að spila eins og fífl. Þeir svöruðu því vel og náðu að sigra og ég er mjög ánægður með stöðu liðsins það sem af er," sagði Jewell, en Wigan sækir nú fast á hæla Manchester United í deildinni. "Þeir eru áræðanlega logandi hræddir við okkur," sagði Jewell og hló.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×