Sport

Mourinho heldur tryggð við Lampard

Nordic Photos / Getty Images
Jose Mourinho segist ekki láta gagnrýni Sven-Göran Eriksson á Frank Lampard á sig fá og bendir á að það sem Lampard geri með enska landsliðinu komi sér ekki við. "Ég mun nota Lampard áfram í mitt lið og mér er alveg sama hvað Hr Eriksson segir um hann, rétt eins og hvað hann segir um Steven Gerrard, það skiptir mig nákvæmlega engu máli. Ég samgleðst með leikmönnum mínum ef þeim gengur vel með landsliðunum og þykir leitt ef þeir tapa. Ég veit samt að menn hafa fullan metnað til að gera vel hjá Chelsea og gleyma landsleikjunum um leið og þeir koma hingað aftur," sagði Mourinho, en margir hafa gagnrýnt leikform Lampard það sem af er leiktíðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×