Sport

Owen ver Eriksson

Michael Owen vill ekki að landsliðsþjálfarinn Sven-Göran Eriksson fái einn allar skammirnar sem hafa dunið á enska landsliðinu eftir tapið gegn Norður-Írum í Belfast í gær og segir að leikmennirnir verði einnig að axla ábyrgðina. "Það var ekki Sven-Göran sem spilaði þennan leik í gær, það vorum við leikmennirnir sem bárum ábyrgð á þessu tapi. Við lékum ágætlega í byrjun, en eftir það vorum við slakir. Við vonum allir að svona lagað komi aldrei fyrir aftur, því það var hræðilegt andrúmsloft í klefanum eftir leikinn. Það eina sem við getum gert er að reyna að þjappa okkur saman og vinna tvo síðustu leikina," sagði Owen, sem fór illa með góð færi í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×