Sport

Fimm í eins leiks bann

5 leikmenn í Landsbankadeildinni voru í gær dæmdir í eins leiks bann.  Davíð Þór Viðarsson FH og Sölvi Sturluson úr KR voru reknir af velli en Bjarnólfur Lárusson KR fær leikbann vegna 6 gulra spjalda og Eyjamennirnir Andri Ólafsson og Heimir Snær Guðmundsson vegna fjögurra gulra spjalda. Tveir leikmenn fengu þriggja leikja bann;  Leifur Guðjónsson GG og Oddur Björnsson markvörður Gróttu en þeir voru reknir útaf í leik liðanna í 3. deild 19. júlí.  Dómarinn í þeim leik veifaði rauða spjaldinu fjórum sinnum og því gula 8 sinnum.  Grótta vann leikinn 5-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×