Sport

Snæfell fær liðsstyrk

Snæfellingar í Stykkishólmi hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir átökin í úrvalsdeildinni á næsta ári, því þeir hafa nú gengið frá samningi við tvo serbneska leikmenn. Þetta eru þeir Igor Beljanski, sem er tveggja metra hár framherji sem leikið hefur í frönsku þriðju deildinni og Slobodan Subasic, sem er 195 cm hár bakvörður og hefur leikið í annari deildinni í heimalandi sínu Serbíu. Báðir þessir kappar voru í herþjónustu allt síðasta ár og léku því aðeins sem áhugamenn í þriðju deildinni í Serbíu. Snæfellingar urðu sem kunnugt er fyrir mikilli blóðtöku í leikmannamálum eftir síðustu leiktíð og misstu flesta burðarása sína frá félaginu, svo að komu Serbanna tveggja verður líklega ákaft fagnað í Hólminum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×