Sport

Liverpool hafnar tilboði í Gerard

Liverpool hafnaði í morgun tilboði frá Chelsea í Steven Gerard.  Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að tilboð Chelsea hafi numið 32 milljónum punda auk þess ætlaði Chelsea að borga þrjár milljónir í viðbót ef liðið næði ákveðnum markmiðum.  Heildarupphæðin fyrir Gerard er því rúmir 4 milljarðar íslenskra króna.  Forystumenn spænska liðsins Real Madríd eru sagðir bíða átekta.  Þeir geta boðið Gerard hagstæðari samning m.a. vegna þess að skattar eru lægri á Spáni. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×